Blobbið mitt
Ýmisleg nytsamlegt
17.06.2007 21:47:05 / Blobby

Hae ho jibbi jeijh

Áfram Ísland


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 12:16:12 / Blobby

YYNNDDIISSLLEEGGTT

Í sólinni bara gaman kvedjur og knus á klakann

kv. Blobby


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 13:31:07 / Blobby

Er á lífi

Ok er ekki alveg að nenna þessu blobbstússi en samt s.s. ég er á lífi og líður alveg bærilega.

Hér eru nokkrir hlutir sem ég er búin að afreka síðan ég blobbaði síðast

1. Varð fertug

2. Fór til Danmerkur.

3. ekki alveg að standa mig í mataræðinu

4. Eignast lítinn systurson

5. Undirbúið fermingu

6. og margt fleira

en allavega þangað til næst.....(þegar ég nenni)

Kv. Blobby


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 16:35:34 / Blobby

Síðustu forvöð

já það eru síðustu forvöð að blobba meðan ég er ennþá ung hehe

á morgun skellur á mig nýr áratugur, grá hár og hrukkur en allt um það er ekki bara málið að vera ungur í anda, ég verð að halda í það en þangað til næst

kv: Blobby


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 22:40:56 / Blobby

Lasin

Já er lasin í dag, annars allt gott jólin gengu vel fyrir sig, nema í matarmálunum, fór í vigtun s.l. miðvikudag og bætti á mig 3 kílóum er á fullu að reyna að koma þessu á rétt ról, þangað til næst.....

kv. Blobby


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 03:17:00 / Blobby

Hehe

Á næstunni verða bara mjög stutt blobb (Örblobb)

kv. Blobby 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 03:14:58 / Blobby

Gleðilegt nýtt ár.....

Og takk fyrir það gamla, meira síðar þangað til næst

kv. Blobby 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 00:12:32 / Blobby

slapp fyrir horn

Halló halló fór í vigtun í dag og viti menn ég fór ekki upp heldur 200 grömm niður ég segi nú bara hjúkkett, var eiginlega alveg viss um að hafa þyngst. Annars er allt við það sama, var að koma heim úr vinnunni, er farin að hlakka til helgarinnar á heila þrjá frídaga í röð, það gerist á 5 vikna fresti og nú á að skella sér á reuninon 4 árgangar úr Búðardalsskóla ætla að hittast, það verður skrítið því að marga af gömlu skólafélögunum hefur maður ekki séð í einhverja áratugi sem er aftur á móti ennþá skrítnara því að ég er alltaf bara 23 hehe en sem sagt þetta er nú stefnan um helgina, strákarnir komnir í vetrarfrí alsælir með það, sá yngsti fór í leikskólann í morgun, hann fékk allsvæsna ælupest greyið sem stóð yfir í rúma tvo sólarhringa en það er sem betur fer yfirstaðið, lítið gaman að vakna upp við að það er nánast verið að gubba yfir mann. Jæja hef ekkert að segja meira en endilega ef þið slysist inn á síðuna ekki vera hrædd við að kvitta takk fyrir það, og þangað til næst.....

kv. Blobby


» 13 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 01:15:11 / Blobby

Er á lífi

Góðan dag gott fólk jæja þá er ég loksins komin með nýja tölvu og nettengingu að auki, þá er engrar undankomu auðið en að taka til við að blobba aftur, annars finnst mér aldrei neitt gerast sem vert er að minnast á, alltaf það sama vinna og vinna og svo heima að snýta og skeina, léttingur gengur ágætlega farin af mér yfir 32 kíló og ég er nottla alveg í skyjunum með árangurinn, fer í vigtun á morgun miðvikudag og þá fæ ég kannski nett sjokk, vonandi fer ég þó ekki mikið uppávið en þessi vika er búin að vera heldur skrautleg, við fórum á árshátíð á föstudagskvöldið og misstum okkur aðeins í bjórnum, annars var maturinn æðislegur fullt af grænmeti bæði ferskur og elduðu, þannig að maturinn var nú kannski ekki svo hættulegur. Svo fórum við Hrönn systir í bíó á sunnudaginn, fórum að sjá Mýrina og þá gúffaði ég í mig einum stórum popp, ég bara varð ég fer í bíó sirka á þriggja til fimm ára fresti svo að ég ákvað að leyfa mér þetta, tútnaði út af bjúg eftir poppátið en hann er hverfandi, veit ekkert hvað ég á að blobba núna á eftir að setja inn þyngd og bmi geri það fljótlega annars bara hafið það sem allra best og þangað til næst...

kv. Blobby


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 21:47:54 / Blobby

Rósaball

Halló halló, allt gott hér, fór í vigtun í gær og stóð í stað, en ég er nú ekki að gráta það mikið, mikið að gera eins og alltaf en samt vakti ég nú á aðfaranótt miðvikudagsins og kaus Magna til hálf fimm, kaus um 250 sinnum, en allt kom fyrir ekki hann varð fjórði sem er nottla bara alveg frábært, maður er búinn að fyllast þvílíkri þjóðernistilfinningu á þriðju og miðvikudögum en það er nú annars ágætt að þetta er búið og maður fer að sofa á nóttunni.

Var hrikalega stolt mamma í kvöld, tvíburarnir að fara á sitt fyrsta skólaball í nýja skólanum, þetta er mjög sniðugt, áttundubekkingar eru boðnir velkomnir og allir eru sóttir heim og fá rós, annar var sóttur í tveggja hæða strætó og hinn í rútu svaka pæjur sóttu þá og færðu þeim rós, náði myndum af þessu finnst þetta alveg hrikalega krúttlegt, þannig að þegar þetta er ritað eru þeir á ballinu, fá svo frí í tveim fyrstu tímunum í fyrramálið, veit ekkert hvað ég á að skrifa meira svo ég hætti bara í bili þangað til næst.......

Kv. Blobby


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 11:52:38 / Blobby

Er orðin frú

Jæja loksins, loksins blobb frá mér, margt og mikið búið að gerast síðan síðast veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja, jú léttingur gengur sæmilega ekki kannski alveg eins hratt og fyrstu vikurnar en síðasta miðvikudag voru farin 30 kíló slétt hvorki meira né minna reyndar búið að vera pínu brokkgeng í sumar (sjá þyngd og BMI).

Við erum flutt, nýja húsið er æði bara gott að vera hérna allir sælir strákarnir komnir með sér herbergi og byrjaðir í nýjum skóla, allt í góðu á þeim vígstöðvum.

Er orðin frú híhí við fórum til sýslumanns þann 11. ágúst og létum pússa okkur saman, létum engan vita fyrr en tveim dögum seinna.

Þetta eru nú stærstu fréttir sumarsins, þar fyrir utan fór ég með strákana á Eiríksstaðahátíðina í júlí og svo fórum við hjónin í siglingu um breiðafjörðinn það var ekkert smá gaman, fékk reyndar bónorðið í þeirri ferð.

Ætla að reyna að blobba örlítið oftar núna þegar ég er orðin nettengd þetta gengur ekki að láta líða marga mánuði á milli en ég hef haft í ýmsu að snúast og varla sest fyrir framan tölvuna. En þangað til næst ......

Kv. Blobby

p.s. áfram Magni


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 14:11:22 / Blobby

Kæruleysi og blobbleti

Hæ hæ blobblatasta manneskjan þessa dagana hlýtur að vera ég. Sumar og sól og mikið að gera, en hvað um það best að vera ekki að afsaka þetta neitt. Léttingur heldur áfram , síðasta miðvikudag fóru 1,2 kíló og í dag 0,7 þannig að heildin er orðin 22,1 kíló farin, þetta hefur tekið mig 21 viku, er mjög sátt og sæl með þetta en held að sjálfsögðu áfram því að enn á ég langt í land en það hlýtur að koma, markmiðið mitt var að losna við 20 kíló fyrir lok sumars þannig að ég er talsvert á undan áætlun svo að nú er ég búin að setja mér nýtt markmið ætla mér að vera orðin 80 kíló fyrir jól vonandi tekst það, annars er allt gott að frétta búin að verða mér úti um slatta af kössum svo að mér ætti nú ekki að vera neitt að vanbúnaði að fara að pakka niður en þá kem ég aftur að þessu klassíska tímaleysi vantar alltaf nokkra klukkutíma í sólarhringinn en nú verða frídagarnir nýttir betur hehe ekki alveg kannski næst á ég fríhelgi 7.-9. júlí en þá ætla ég að fara með strákana mína á Eiríksstaðahátíðina það er nottla skömm að því að hafa aldrei farið á þessa annars ágætu hátíð(eða svo er mér sagt) þannig að stefnan er tekin þangað svo erum við hjónaleysin að spá í að skella okkur í siglingu um Karabíska hafið nei nei það eru nú bara draumórar ég ætlaði nú að segja Breiðafjörðinn þann 15. júlí. Þannig er að móðurbróðir minn er að koma til landsins í fyrsta skipti í yfir 20 ár hann hefur búið í Ástralíu og af því tilefni verður farið í siglinguna svona familíuferð. Hlakka mikið til og elsku Konni og Marín, velkomin til landsins og vonandi njótið þið dvalarinnar. Þannig að eins og þið sjáið er kæruleysið allsráðandi þegar kemur að pökkunarmálum en þetta hlýtur að hafast fyrr eða síðar fáum húsið afhent 1. ágúst en þurfum ekki að afhenda hér fyrr en 1. september. Enívei hafið það sem allra best og þangað til næst.....

Kv. Blobby


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 14:22:10 / Blobby

Allt á fullu

Komið öll blessuð og sæl, (þ.e.a.s. þeir sem nenna ennþá að kíkja hérna inn) skil vel að fólk hætti að koma hérna sökum blobbleti minnar en hvað um það , allt gott að frétta á þessum bæ vinna og aftur vinna, búið að skrifa undir bæði kaup og sölu þannig að við flytjum í ágúst, allir voða spenntir áhugi þó mismikill hjá unglingunum að skipta um skóla en þeir verða víst að sætta sig við það, af léttingsmálum er líka allt gott í heildina farin 20,2 kíló smá bakslag í gær, þá bættust á mig 200 grömm enda kannski ekkert skrítið skautaði aðeins út af beinu brautinni um helgina var hjá mömmu og vigtaði ekki neitt og borðaði allt of mikið af reyktu kjöti og svo skellti ég í mig kjúklingaborgara og frönskum á sunnudeginum. En það skal fara af mér slatti næst er alveg 100% ddv og held ótrauð áfram en takk fyrir að kíkja hingað og peppa mig upp og mamma takk fyrir verðlaunin en þangað til næst.....

Kv. Blobby


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 22:00:01 / Blobby

Vigtun í gær ofl.

Jæja allt á fullu hér endalaus vinna og aftur vinna erum búin að kaupa okkur hús verður trúlega skrifað undir öðru hvoru megin við helgina þannig að núna er best að fara að bretta upp ermar og fara að safna kössum og pakka niður, þessir 2 mánuðir þangað til við fáum afhent verða örugglega fljótir að líða, en þá að léttingnum fór í vigtun í gær og mér til mikillar ánægju yfirgáfu mig 1,6 kíló þessa vikuna þannig að heildin er orðin 18,7 kíló styttist óðfluga í tveggja stafa töluna, fór í klippingu í gær og lét lita mig dökkhærða rosa breyting æðislega gaman að gera eitthvað svona fattaði að ég hafði ekki farið í klippingu síðan í nóvember, þetta er nottla ekki hægt lofa að láta ekki líða svona langan tíma næst. En nú veit ég ekkert hvað ég á að skrifa meira er að basla við að ákveða hvað ég á að kjósa finnst þetta allt sami grautur í sömu skál, en allavega ekki vera hrædd við að kommenta, og hafið það sem best þangað til næst......

 

 



Kv. Blobby


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 23:08:54 / Blobby

Ferðasagan og vigtun í dag

Jæja loksins kemur blobb, við komum heim frá New York á laugardagsmorgunn alveg dauðþreytt eftir ferðina sem var alveg æði. Mataræðið var nú ekki upp á marga fiska(allavega borðaði ég engan fisk í NY) en hérna kemur svona sirka það sem var etið og nottla skoðað og spókað sig. 5. maí föstud: lentum á JFK kl. 7 að kveldi það tók sinn tíma að komast inn í landið fingraför tekin og eftirlit. Tókum taxa inn á Manhattan á hótelið snæddum kalkúnaborgara og franskar um kvöldið og röltum soldið á Broadway. 6. maí laugard. Við tókum daginn snemma vorum vöknuð uppúr 7 ég fór í stórmarkað sem er beint á móti hótelinu og keypti brauð vatn og ávexti og grænmeti og alla morgnana fékk ég mér einhverskonar brauð og ávöxt og drakk allan tíman vel af vatni. Síðan löbbuðum við af stað sáum David Blaine(gæann í vatnskúlunni) skoðuðum okkur um mest þann daginn, borðuðum í hádeginu á stað með hlaðborði þannig að fullt af grænmeti rataði á diskinn minn þá. Síðan tókum við leigubíl til Queens í föndurbúð þar sem Ellen verslaði helling í skrappið. Svo fórum við aftur upp á hótel allir orðnir dauðþreyttir á öllu labbinu en ég gat ekki sofnað svo ég fór út og ranglaði inn á stað sem hægt er að fá sér neglur og haldið ykkur nú, mín fékk sér þessar fínu gelneglur algjör skvísa híhí. Þetta tók aðeins lengri tíma en ég hafði gert ráð fyrir svo að Halli og Ellen voru orðin skíthrædd vissu ekkert hvert ég fór(þau höfðu sofnað) en ég kom í leitirnar svo borðuðum við á kínversk/kúbönskum stað um kvöldið og þá fékk ég mér T-bone steik með kartröflu og grænmeti. Svo kom nafna um nóttina hún kom frá nýja-sjálandi. 7. maí sunnud. Vöknuðum ekkert mjög snemma og eyddum deginum að mestu leyti í Central park (labb labb labb) fengum okkur hamborgara og franskar í hádeginu og svo fórum við á æðislegan Ítalskan stað um kvöldið get ómögulega munað hvað ég borðaði það trúlega eitthvað pasta . 8. maí mánud. Fórum á Times Square og keyptum okkur miða í útsýnisferðir og fórum þann dag í Downtown ferð og svo í Brooklyn ferð og svo í kvöldferð. Borðuðum á skyndibitastað í hádeginu eitthvað junkfæði og svo fórum við á Hard rock um kvöldið. 9. maí þriðjud: fórum í uptown útsýnisferð síðan í ferju að skoða frelsisstyttuna og innflytjendasafnið á Ellis island fórum svo og skoðuðum Ground zero(þar sem tvíburaturnarnir stóðu) og svo upp í Empire state building um kvöldið. Borðuðum á kínahlaðborði í hádeginu og á pizzastað um kvöldið. 10. maí miðvikud. Þetta var “shoppin day” allur dagurinn var einn verslunartúr æðislega gaman sérstakleg þegar maður hefur minnkað um 3-4 fatastærðir fórum á Mcdonalds í hádeginu og Manhattan diner um kvöldið og þar hef ég aldrei séð aðra eins skammta ekkert smá magn af mat. 11. maí fimmtud. Ég og Halli fórum í vaxmyndasafnið og tókum fullt af myndum af okkur með fræga “fólkinu” alveg frábært og gaman að skoða. Svo fórum við Ellen í Sex and the city túr í rútu með leiðsögumanni alveg æðislega gaman núna á ég mynd af mér á tröppunum hjá Carrie og á bar að drekka Cosmopolitan. Fórum á Subway í hádeginu og á Planet Hollywood um kvöldið. 12. maí föstud. Pakkað niður um morguninn og svo tókum við neðanjarðarlest niður í Soho og löbbuðum þar fórum svo upp á hótel og sóttum farangurinn okkar og kl. 4 lögðum við á stað út á flugvöll. Þannig var nú þessi ferðasaga í stórum dráttum frábær ferð í alla staði væri alveg til í að fara einhvern tíma aftur til NY.

Byrjaði svo strax á laugardagskvöldið í DDV  og hef haldið mig við það síðan og held því áfram. Var skíthrædd um að hafa þyngst en vigtóría fór um mig mjúkum höndum í dag fór hálft kíló niður svo að heildin er orðin 17,1 kíló farin.alsæl með það auðvitað og nú fer að styttast í tveggja stafa töluna en upphaflega markmiðið var að ná þeim áfanga fyrir lok sumars svo að ég er vel á undan áætlun. Jæja þetta er nú orðin ansi langt blobb takk fyrir að kíkja hérna á síðuna og endilega ekki vera hrædd við að kommenta takk fyrir það en bless í bili og þangað til næst.....

Kv. Blobby


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4